Villa í Orihuela - SO-1367
Lýsing
Einstakt lúxuseinbýlishús í glæsilega Las Colinas Golf & Country Resort. Húsið er á milli appelsínu trjáa, furuskóga og göngustíga fyrir útivistarfólk og glæsilega 18 holu golfvallarins.
Hin vinsæla verslunarmiðstöð Zenia Boulevard og Blue flag strendur Orihuela Costa eru einungis í 10 mínútna akstursfjarlægð. Kjarninn er alveg lokaður með stýrðum aðgangi, hannaður fyrir þá sem vilja einstaka staðsetningu og næði á suðurhluta Costa Blanca.
Húsið er einstakt og hannað í nútímalegum stíl sem sameinar bogadregnar og beinar línur, björt rými með miklu notagildi og fallega hönnuð. Húsið er á 2 hæðum auk kjallara og stendur á 1.254 m2 lóð. Á jarðhæðinni er stofan, borðstofan og eldhúsið í einu opnu rými, ásamt gestasalerni. Herbergin 3 eru á annarri hæðinni, öll með sér baðherbergi, og fallegu útsýni.
Kjallarinn er stór og eitt opið rými, með geymslu, tækjaherbergi og tómstundarými sem hægt er að nota sem bílskúr fyrir fjölda bíla, eða hvað sem er.Lykilatriði við hönnun hússins var sjálfbærni og orkusparnaður sem endurspeglast í húsinu sjálfu og garðinum.
Lánareiknivél
Aðeins áætlun — hafðu samband við bankann þinn fyrir raunverulegt tilboð.
Staðsetning
Orihuela, Alicante

