Villa í La Marina - AC-897
Lýsing
Nýr kjarni einbýlishúsa, staðsettur í rótgrónu íbúðahverfi La Marina, við suður Costa Blanca. Svæðið býður upp á daglegar nauðsynjar, eins og stórmarkaði, banka, verslanir, bari og veitingastaði, auk heilsugæslu. Staðsetningin er góð, með frábærum ströndum, tómstunda- og íþróttaaðstöðu í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Staðurinn er enn fremur hentugur fyrir náttúruunnendur, með Parque Natural de Hondo í göngufæri frá kjarnanum.
Þessi fallega villa er byggð á 415m² lóð og á þrem hæðum. Hún samanstendur af 5 rúmgóðum svefnherbergjum og 5 baðherbergjum, opnu eldhúsi með stórri borðstofu og verönd með útsýni yfir sundlaugarsvæðið.
Lánareiknivél
Aðeins áætlun — hafðu samband við bankann þinn fyrir raunverulegt tilboð.
Staðsetning
La Marina, Alicante
