Lýsing
Hér er um að ræða einstaka eign sem sameinar rými, nútímaleg þægindi og einstakt útisvæði á frábærum stað á Costa Blanca. Húsið er alls 240m² á tveimur hæðum og stendur á 329m² einkalóð með fallegum garði, einkasundlaug og glæsilegri 54m² þakverönd þar sem hægt er að njóta spænsku sólarinnar allan ársins hring.
Á aðalhæðinni, sem er um 120m², tekur á móti þér björt og rúmgóð forstofa með góðu skápaplássi ásamt þvottahúsi og auka ísskáp. Þar eru tvö rúmgóð svefnherbergi, þar af glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi og innangengnum fataskáp. Einnig er gestasalerni á gangi. Opið og einstaklega bjart eldhús og stofa mynda fallegt alrými með beinu útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið – fullkomið fyrir bæði daglegt líf og gestamóttökur.
Neðri hæðin býður upp á um 120m² af fjölbreyttu rými með tveimur stórum herbergjum, rúmgóðu sjónvarpsholi og glæsilegu bar- og leiksvæði þar sem meðal annars er poolborð, píla og góð aðstaða til samveru og skemmtunar. Þar eru einnig tvær geymslur sem bæta við þægindi eignarinnar.Þetta er eign fyrir þá sem vilja njóta lífsins á Spáni með stíl, næði og öllum helstu þægindum í göngufæri. Benijófar er einstaklega vinsæll og heillandi bær með fjölbreyttri þjónustu, veitingastöðum, kaffihúsum og stuttri fjarlægð í golfvelli og fallegar strendur Costa Blanca.